Wednesday, June 25, 2008

Kvæðið um Kobbu

Í kvöld orti ungur "listamaður" að nafni DÝP (Kristín Dís) þetta fagra ljóð um klámsjúki stelpuna hana Kobbu :)
Kobba heiti ég klámsjúka og þykir mér gaman að fá að strjúka,
Tippi eru mitt aðalfag, því á þeim kann ég mikið lag.
Strákar ertu nytsamir, samte itthvað svo misjafnir.
Við þá vil ég leika, en þó aðallega sleikja.
Í p**u mína vil stóra en þó ekki svo grófa,
Feita ég ekki fíla því ég er engin grýla.
Langar þig að sting'onum inn?
Hringdu þá í mig væni minn.
--Kolbrún; sem vill þakka fyrir þetta fallega ljóð

Saturday, June 21, 2008

Slæmur draumur



Í nótt dreymdi mig slæmann draum.. eða þegar ég fer að hugsa út í það var þetta líklegast martröð!

Mig dreymdi að það væru morðóðir ræningjar í Landsbankanum í Þorlákshöfn (samt var ég stödd á einhverjum stað sem innihélt sundlaug). Þeir ætluðu að drepa alla sem inni voru og ég náði að fela mig í sundlauginni á botninum (einhvernvegna gat ég andað í vatninu). Síðan náði ég að sleppa út og hlaupa út í bakarí (sem var samt íbúðarhús) og fela mig inni í skáp. Í þessu bakarís-íbúðarhúsi voru flest allir þorlákshafnarbúar samankomnir og rétt eftir að ég var búin að koma mér fyrir inni í skáp skjálfandi úr hræðslu var ættingi minn stunginn til bana á hrottarlegann hátt og morðingja-ræningjarnir komust inn og náðu að myrða fullt af fólki.

Þegar þeir voru búnir að drepa nokkra fóru þeir og einhverjir komu að athuga með mig inni í skáp. En það fólk var ekkert skelkað, það virtist bara vera þreytt og ekkert í uppnámi yfir drápunum! Ég öskraði á fólk og var að fríka út...

...svo vaknaði ég við símann!


Þegar ég vaknaði var ég bara pínulítið hrædd verð ég að viðurkenna :)

Svona getur hausinn á manni ruglað mann illilega þegar maður er sofandi.


En hver veit hvað það þýðir að dreyma morð??
--Kolbrún

Thursday, May 22, 2008

"I'm on a trip with my job you know, do you have a condom?"


Laugardagurinn 17.maí var bjartur dagur með smá skúrum. Sjoppan í Þorlákshöfn fylltist af furðufuglum í skrítnum fötum. Öll voru þau með bjór í annari og banana í hinni. Viðskiptavinir sjoppunar voru undrandi yfir þessum bjánum og horfðu vandlega á þau á meðan að þeir mauluðu prins pólóið sitt. Um eitt leytið tæmdist sjoppan af þessum lýð og héldu þau öll út í rútu þar sem að þau reykspóluðu burt.



--Kolbrún; excuse me, do you have a condom?

Monday, May 19, 2008

The Virginator



Afsveinarinn er okkar hetja
allir hana áfram hvetja.
Að svipta sem flesta þeirra sveindómi
Þannig að slúðursögur um hana ómi.
Sem afsveinarinn er hún þekkt,
Í kringum sveinana hún er ekki upptrekkt.
Hleypir þeim inn eins og ekkert sé,
Kannski hún ætti að taka fyrir það fé?

Sunday, May 11, 2008

dagurinn eftir


Að vakna í ógeðslegri brennivínsstækju með hræææðilegt bragð uppí kjaftinum á þér. Þig hálfpartinn svíður í andlitið útaf því að þú hefur ekki haft rænu á eða ekkert hugsað út í það að þrífa djamm málinguna af þér áður en þú fórst að sofa. Þú þarft geðveikt að pissa.... eða æla, þú ert ekki alveg viss hvort, kannski bara bæði? Nennir ekki fram útaf því að þú bara veist að hún mamma þín tuðar eitthvað smá yfir því hvað þú lítur tussulega út og spyr "hva varstu mikið full í gær?" og þótt þú vitir alveg að þú sért ekkert barn lengur segiru samt alltaf "nei æ ég fékk mér bara smá, var bara létt". Þig vantar svo mikið að fá þér vatnsglas og verkjapillu en langar alls ekki að æla henni þannig að þú ert svolítið kvíðin fyrir að innbyrða eitthvað. Þú hugsar, hvað í andskotanum gerði ég í gær? Ég man ég fór í partýið og hvað svo? Ji ég vona ég hafi ekki gert neitt vandræðalegt eins og að drepast í sófanum eða eitthvað. Þú loksins drullar þér á fætur en getur engan vegin komið þér í sturtu þó svo að þig sárvanti það. Ferð út í sjoppu og færð þér hvítlauksbrauð, frábært að bæta á vondu lyktina! Þú hittir vini þína og þeir tala um hvað þú hafir verið full, þú hlærð bara og vonar að það komi ekki eitthvað kjánalegt um þig upp í umræðunum.


Eftir um sjö kókdósum síðar og smávegis þynnkulétti helduru að þú sért að verða góð, en þá hringir vinkona þín og þú færð að vita þetta vandræðalega sem þú gerðir í gær. Þú fékkst að vita að...................


--Kolbrún; hahaha þetta blogg er tileinkað góðvinkonu minni Kristínu Dís fyrir að hafa loksins drukkið eftir átta mánaða edrúmennsku!!

Monday, May 5, 2008

Frægð og Frami í Sjoppuni


Hafið þið lent í því að vera í kringum frægt fólk og vera ekki viss hvernig þið eigið að vera? Á maður að horfa og brosa? Þykjast ekki þekkja hann? Láta eins og manni sé skítsama? Eða bara vera vinalegur og koma fram við hann eins og hvern annan kúnna?
Í sjoppuni lendir maður furðu oft í því að afgreiða einhvern frægann. Sem dæmi má nefna Val í Buttercup, Stefán Hilmars, Dalton strákana, Magna og núna í kvöld Björn Hlyn! Ég er náttúrulega svo mikill græningi að ég fattaði ekkert hver þetta var, enda var hann fúlskeggjaður kallinn! Björn Hlynur er náttúrulega mjööög sjarmerandi gæji en þegar að hann kom í sjoppuna í Wifebeaternum, með þykka skeggið og tattoo á hálsinum bjóst ég náttúrulega bara við því að þetta væri bara einhver pappakassi útí bæ!

Björn er örugglega að leika í þessari mynd sem verið er að taka upp í vor fögru höfn, sem er einhver mynd sem gerist að hluta til um borð í Jóni á Hofi!
Er Þorlákshöfn kannski að komast á kortið í gegnum kvikmyndir?
Það var nú í Strákunum okkar (sem Björn Hlynur lék í) þar sem að Sirrý-arnar birtust í, ásamt fallegu sjoppuni okkar.
--Kolbrún; Þorlákshöfn.. eða ætti ég að segja Þollýwood?

Wednesday, April 23, 2008

Nick Pitera


Góðann daginn!!

Eigum við að ræða eitthvað herra Nick Pitera


sem getur sungið bæði sem karlmaður OG kona!


http://youtube.com/watch?v=t9-CS2v8wcc


--Kolbrún; sem fannst þetta stóóórmagnað