Hafið þið lent í því að vera í kringum frægt fólk og vera ekki viss hvernig þið eigið að vera? Á maður að horfa og brosa? Þykjast ekki þekkja hann? Láta eins og manni sé skítsama? Eða bara vera vinalegur og koma fram við hann eins og hvern annan kúnna?
Í sjoppuni lendir maður furðu oft í því að afgreiða einhvern frægann. Sem dæmi má nefna Val í Buttercup, Stefán Hilmars, Dalton strákana, Magna og núna í kvöld Björn Hlyn! Ég er náttúrulega svo mikill græningi að ég fattaði ekkert hver þetta var, enda var hann fúlskeggjaður kallinn! Björn Hlynur er náttúrulega mjööög sjarmerandi gæji en þegar að hann kom í sjoppuna í Wifebeaternum, með þykka skeggið og tattoo á hálsinum bjóst ég náttúrulega bara við því að þetta væri bara einhver pappakassi útí bæ!
Björn er örugglega að leika í þessari mynd sem verið er að taka upp í vor fögru höfn, sem er einhver mynd sem gerist að hluta til um borð í Jóni á Hofi!
Er Þorlákshöfn kannski að komast á kortið í gegnum kvikmyndir?
Það var nú í Strákunum okkar (sem Björn Hlynur lék í) þar sem að Sirrý-arnar birtust í, ásamt fallegu sjoppuni okkar.
--Kolbrún; Þorlákshöfn.. eða ætti ég að segja Þollýwood?
1 athugasemdir:
hehe þþú ert snilli.. en já maður hefur oft pæt í þessu hvernig maður ætti að koma fram við það... hehe
en já þokkalega þollywood.. hehehe það er málið.. hehehehe
kveðja Hófí Skálapía..:):) heheh
Post a Comment