Jæja tölum aðeins um ferðafélaga. Ástæða? jú útaf því að Kolbrún er gott dæmi um ferðafélaga sem er bæði skemmtilegur og líka alveg einn leiðinlegasti ferðafélagi sem til er!
Þegar það er dagur og við erum að keyra eitthvert, tökum Reykjavík sem dæmi, þá er ferðin okkar til Reykjavíkur alveg rosalega skemmtileg þar sem við setjum einhver gamlan disk og syngjum með eða tölum endalaust mikið. En heimleiðin er ekki eins skemmtileg allra síst þegar það er komin kvöld og myrkur. Þá ákveður stelpan að fara bara að sofa!!! Það er mest pirrandi í heimi að vera að keyra heim frá Reykjavík segjum í kringum miðnætti og maður er kannski orðinn þreyttur og manneskjan við hliðina á manni er sofandi, jafnvel hrjótandi. Það er ekki séns að Kolbrún geti haldið sér vakandi alla leiðina heim frá Reykjavík, hún er að berjast við halda augunum opnum þar sem ég er búin að skamma hana svo mikið en hún þraukar aldrei lengur en að Þrengslunum. Hún setur meira að segja kannski mjög fjörugan disk í tækið til að reyna að halda sér vakandi heim EN viti menn, hún sofnar sama hversu hátt stillt tónlistin er og hversu fjörug hún er. En hún er samt líka mikið í því að setja einhvern ýkt rólegan disk í að ég meira sofandi heldur en vakandi;) hehe
Þannig að Kolbrún farðu að gera eitthvað í þessu því með þessu áframhaldandi þá sofna eg undir stýri og við bara úúútaf:P haha
En ef einhver er með geðveikt góða hugmynd um hvernig ég næ að halda Kolbrúnu vakandi alla leiðina heim endilega látið heyra í ykkur;)
ÍrisDröfn - sem vonar að Kolbrún haldi sér vakandi á heimleið í kvöld;)
Saturday, March 29, 2008
Monday, March 24, 2008
Páskar
Faðir Páskaegg
Þú sem ert í munni
Helgist þitt bragð
tilkomi þinn málsháttur
Verðir þú gott
Í hillu sem og munni.
Gef oss í dag vorann daglega sykur
og fyrirgef oss að borða nammi ekki bara á laugardögum
Elska þig páskaegg <3
Saturday, March 15, 2008
Wednesday, March 12, 2008
Páll Óskar í smellytown

Páll Óskar, þekktastur fyrir þröngu buxurnar sínar og dj- og söng hæfileika sína, mun þeyta skífum í vor illa lyktandi smábæ föstudaginn 14.mars í Ráðhúskaffi. Auðvitað verður maður að skella sér enda ekki oft (réttara sagt aldrig) sem meistari Páll kemur í höfnina!
Ég hvet alla til að demba sér í eitt klístraðasta ball ársins í Þorlákshöfn!
--KGunnars; Bleiiiz
Friday, March 7, 2008
Zuuber 2 / Deitið

Já nú er maður umtalaður í skólanum sem stelpan sem fór á deit í pulló eða sú sem varð að reyna að redda sér kærasta í gegnum Zuuber. Það vona ég reyndar að fólk sé ekki að halda, þar sem þetta var bara eitt feitt grín :)
Ég, Kristín Dís og Freyja Mjöll mættum galvaskar í pulsuvagninn, að vísu klukkan tólf þar sem deitið átti að vera klukkan hálf eitt og okkur langaði ekkert brjálað mikið að mæta á það. Við sátum í sakleysi okkar (Freyja undir stýri) í Golfinum á hótelplaninu að snæða pulló matinn okkar.
Ég, Kristín Dís og Freyja Mjöll mættum galvaskar í pulsuvagninn, að vísu klukkan tólf þar sem deitið átti að vera klukkan hálf eitt og okkur langaði ekkert brjálað mikið að mæta á það. Við sátum í sakleysi okkar (Freyja undir stýri) í Golfinum á hótelplaninu að snæða pulló matinn okkar.
Þá birtist allt í einu blá GT Impreza. Við hugsuðum allar "vá hvað þetta er pottþétt gaurinn". Og viti menn, það var hann! Imprezan renndi upp að okkur (og ég meina ekkert lítið nálægt, ef hann hefði komið aðeins nær hefði hann straujað okkur) og skrúfaði niður rúðuna. Freyja hallaði sér að mér og grét úr hlátri og ég hallaði mér að henni og náði ekki andanum vegna hláturs, á meðan lá kristín dís á gólfinu í bílnum. Þegar við meikuðum ekki meira (og Freyja orðin alsvört vegna maskaraleka) skellti ég í drive og við rúlluðum af stað.
Dúddinn sá þá hvað var í gangi og keyrði í burtu og fór í Pulló röðina. Í Pulsuvagninum voru þó nokkuð margir Þorlákshafnarbúar staddir til að fylgjast með atburðinum. Við keyrðum mörgum sinnum framhjá gæjanum með tárin lekandi og gjörsamlegast að bilast úr hlátri! Svo vorum við að benda öllum á gæjann þar sem að það var mikil spenna fyrir að sjá hann.
Hann reyndist ekki vera..... "mín týpa!"
Stillið á sirka 02:20 og heyrið þetta fyndna dæmi :) http://vefmidlar.visir.is/vefUtvarp/?channelID=FM957&programID=4aed163b-f860-4f0e-ae02-ee9f9b0945e9&mediaSourceID=1163c257-ec0e-4838-b52d-611b9a7e570b
Ath að gæjinn sagði við mig að þetta hafi verið grín hjá sér að hringja inn á Zuuber :)
--KolbrúnGunnars; Sem fann ekki ástina í Zuuber ;)
Thursday, March 6, 2008
Zuuber
Ég kom mér í skemmtilegt atvik í dag!
Ég var að leggja af stað í skólann með fríðu föruneyti þegar að einhver kjáni hringdi inn á Fm957 í Zuuber þáttinn. Það sem hann sagði var að hann væri 21 árs, héti Fannar, byggi á selfossi og væri gröfukall. Hann vildi finna sér einhverja stelpu! Þetta hlógum við öll í bílnum óendanlega mikið að, enda ekki oft sem maður heyrir svona rugl í útvarpinu (þó svo mig gruni að þetta hafi verið eitthvað sem Fannar greyjið hafi verið manaður upp í að gera.)
Svo kom það upp í kollinn á mér að hringja inn og rugla eitthvað, eins og ég geri best.
Svo kom það upp í kollinn á mér að hringja inn og rugla eitthvað, eins og ég geri best.
Ég hringdi og sagðist vera í skóla á Selfossi og ég væri sko alveg til í hann því að mig vantaði svo einhvern kærasta til að gista hjá á virkum dögum, það væri svo leiðinlegt að keyra í skólann á morgnana og það myndi spara mér bensín. (Fékk klapp á þetta :D).
Svo voru þau eitthvað að reyna að koma okkur saman og ákveðið var að við myndum hittast í pulló og svo ætluðu þau að bjóða okkur í bíó.
Ég ætla mér nú reyndar að fara í pulló, en ég ætla með Kristínu og Freyju og snæða með þeim!
Forvitnilegt er að vita hvort að Fannar kallinn mæti galvaskur í pulló í smóking akandi gröfu!?
--KolbrúnGunnars; þokkalega komin á sjéns ;)
Sunday, March 2, 2008
Þessi síða?
Spurt: Blogger.com herm þú mér, hver af okkur blogguðust er?!
Svarað: Það mun koma í ljós næstu vikur á nýju síðunni ykkar "hafnarstulkur.blogspot.com"
--KG; you like?
Subscribe to:
Posts (Atom)


