Wednesday, June 25, 2008

Kvæðið um Kobbu

Í kvöld orti ungur "listamaður" að nafni DÝP (Kristín Dís) þetta fagra ljóð um klámsjúki stelpuna hana Kobbu :)
Kobba heiti ég klámsjúka og þykir mér gaman að fá að strjúka,
Tippi eru mitt aðalfag, því á þeim kann ég mikið lag.
Strákar ertu nytsamir, samte itthvað svo misjafnir.
Við þá vil ég leika, en þó aðallega sleikja.
Í p**u mína vil stóra en þó ekki svo grófa,
Feita ég ekki fíla því ég er engin grýla.
Langar þig að sting'onum inn?
Hringdu þá í mig væni minn.
--Kolbrún; sem vill þakka fyrir þetta fallega ljóð

Saturday, June 21, 2008

Slæmur draumur



Í nótt dreymdi mig slæmann draum.. eða þegar ég fer að hugsa út í það var þetta líklegast martröð!

Mig dreymdi að það væru morðóðir ræningjar í Landsbankanum í Þorlákshöfn (samt var ég stödd á einhverjum stað sem innihélt sundlaug). Þeir ætluðu að drepa alla sem inni voru og ég náði að fela mig í sundlauginni á botninum (einhvernvegna gat ég andað í vatninu). Síðan náði ég að sleppa út og hlaupa út í bakarí (sem var samt íbúðarhús) og fela mig inni í skáp. Í þessu bakarís-íbúðarhúsi voru flest allir þorlákshafnarbúar samankomnir og rétt eftir að ég var búin að koma mér fyrir inni í skáp skjálfandi úr hræðslu var ættingi minn stunginn til bana á hrottarlegann hátt og morðingja-ræningjarnir komust inn og náðu að myrða fullt af fólki.

Þegar þeir voru búnir að drepa nokkra fóru þeir og einhverjir komu að athuga með mig inni í skáp. En það fólk var ekkert skelkað, það virtist bara vera þreytt og ekkert í uppnámi yfir drápunum! Ég öskraði á fólk og var að fríka út...

...svo vaknaði ég við símann!


Þegar ég vaknaði var ég bara pínulítið hrædd verð ég að viðurkenna :)

Svona getur hausinn á manni ruglað mann illilega þegar maður er sofandi.


En hver veit hvað það þýðir að dreyma morð??
--Kolbrún

Thursday, May 22, 2008

"I'm on a trip with my job you know, do you have a condom?"


Laugardagurinn 17.maí var bjartur dagur með smá skúrum. Sjoppan í Þorlákshöfn fylltist af furðufuglum í skrítnum fötum. Öll voru þau með bjór í annari og banana í hinni. Viðskiptavinir sjoppunar voru undrandi yfir þessum bjánum og horfðu vandlega á þau á meðan að þeir mauluðu prins pólóið sitt. Um eitt leytið tæmdist sjoppan af þessum lýð og héldu þau öll út í rútu þar sem að þau reykspóluðu burt.



--Kolbrún; excuse me, do you have a condom?

Monday, May 19, 2008

The Virginator



Afsveinarinn er okkar hetja
allir hana áfram hvetja.
Að svipta sem flesta þeirra sveindómi
Þannig að slúðursögur um hana ómi.
Sem afsveinarinn er hún þekkt,
Í kringum sveinana hún er ekki upptrekkt.
Hleypir þeim inn eins og ekkert sé,
Kannski hún ætti að taka fyrir það fé?

Sunday, May 11, 2008

dagurinn eftir


Að vakna í ógeðslegri brennivínsstækju með hræææðilegt bragð uppí kjaftinum á þér. Þig hálfpartinn svíður í andlitið útaf því að þú hefur ekki haft rænu á eða ekkert hugsað út í það að þrífa djamm málinguna af þér áður en þú fórst að sofa. Þú þarft geðveikt að pissa.... eða æla, þú ert ekki alveg viss hvort, kannski bara bæði? Nennir ekki fram útaf því að þú bara veist að hún mamma þín tuðar eitthvað smá yfir því hvað þú lítur tussulega út og spyr "hva varstu mikið full í gær?" og þótt þú vitir alveg að þú sért ekkert barn lengur segiru samt alltaf "nei æ ég fékk mér bara smá, var bara létt". Þig vantar svo mikið að fá þér vatnsglas og verkjapillu en langar alls ekki að æla henni þannig að þú ert svolítið kvíðin fyrir að innbyrða eitthvað. Þú hugsar, hvað í andskotanum gerði ég í gær? Ég man ég fór í partýið og hvað svo? Ji ég vona ég hafi ekki gert neitt vandræðalegt eins og að drepast í sófanum eða eitthvað. Þú loksins drullar þér á fætur en getur engan vegin komið þér í sturtu þó svo að þig sárvanti það. Ferð út í sjoppu og færð þér hvítlauksbrauð, frábært að bæta á vondu lyktina! Þú hittir vini þína og þeir tala um hvað þú hafir verið full, þú hlærð bara og vonar að það komi ekki eitthvað kjánalegt um þig upp í umræðunum.


Eftir um sjö kókdósum síðar og smávegis þynnkulétti helduru að þú sért að verða góð, en þá hringir vinkona þín og þú færð að vita þetta vandræðalega sem þú gerðir í gær. Þú fékkst að vita að...................


--Kolbrún; hahaha þetta blogg er tileinkað góðvinkonu minni Kristínu Dís fyrir að hafa loksins drukkið eftir átta mánaða edrúmennsku!!

Monday, May 5, 2008

Frægð og Frami í Sjoppuni


Hafið þið lent í því að vera í kringum frægt fólk og vera ekki viss hvernig þið eigið að vera? Á maður að horfa og brosa? Þykjast ekki þekkja hann? Láta eins og manni sé skítsama? Eða bara vera vinalegur og koma fram við hann eins og hvern annan kúnna?
Í sjoppuni lendir maður furðu oft í því að afgreiða einhvern frægann. Sem dæmi má nefna Val í Buttercup, Stefán Hilmars, Dalton strákana, Magna og núna í kvöld Björn Hlyn! Ég er náttúrulega svo mikill græningi að ég fattaði ekkert hver þetta var, enda var hann fúlskeggjaður kallinn! Björn Hlynur er náttúrulega mjööög sjarmerandi gæji en þegar að hann kom í sjoppuna í Wifebeaternum, með þykka skeggið og tattoo á hálsinum bjóst ég náttúrulega bara við því að þetta væri bara einhver pappakassi útí bæ!

Björn er örugglega að leika í þessari mynd sem verið er að taka upp í vor fögru höfn, sem er einhver mynd sem gerist að hluta til um borð í Jóni á Hofi!
Er Þorlákshöfn kannski að komast á kortið í gegnum kvikmyndir?
Það var nú í Strákunum okkar (sem Björn Hlynur lék í) þar sem að Sirrý-arnar birtust í, ásamt fallegu sjoppuni okkar.
--Kolbrún; Þorlákshöfn.. eða ætti ég að segja Þollýwood?

Wednesday, April 23, 2008

Nick Pitera


Góðann daginn!!

Eigum við að ræða eitthvað herra Nick Pitera


sem getur sungið bæði sem karlmaður OG kona!


http://youtube.com/watch?v=t9-CS2v8wcc


--Kolbrún; sem fannst þetta stóóórmagnað

Monday, April 14, 2008

Chico


Kveldið!
Ég sé ekki betur en að það séu bara 84 dagar í það að ég, Íris, Gréta, Freyja og Kristín sitjum í sólinn á Tenerife kicking it back með breezer í annari og gaur í hinni ;)
Eitt af því sem ég hlakka mest til er að finna tilfinninguna þegar að maður stígur úr flugvélinni inn í heita loftið og nær varla andanum. Sú tilfinning er geðveik!!
Svo hlakka ég líka til að fara á Tramps! Hef heyrt að það sé bara endalaust geðveikur staður :)
--Kolbrún; sem ætlar að hætta að dreyma dagdrauma og fara að dreyma næturdrauma

Sunday, April 6, 2008

Karlmenn


Hvað er málið með karlmenn og pissuskálar? Það bregst ekki að þegar maður er að fara yfir klósettin hérna í vinnunni þá er karlaklósettið alltaf ógeðslegast og þá erum við að tala um pissuskálarnar? Eiga karlmenn svona erfitt að miða eða hvað?

Endilega komið með skemmtilega ástæðu fyrir þessu:P


Íris- sem er þreytt á skítugum pissuskálum

Friday, April 4, 2008

Gréta/Grettle/Gógó Páls!


Ég vil fræða ykkur aðeins um unga mey sem býr á Selfossi. Hún er 18 vetra og aðeins 1 vetur í það að hún verði 19 vetra! Gréta, Grettle eða Gógó páls er stórmögnuð stúlka að mínu mati!

Hún æfir frjálsar og lítur svona andskoti vel út í tights buxum ;) Maður getur vart hamið sig, og ekki geta strákarnir það heldur þar sem hún þarf að synda skriðsund af fullum krafti þegar hún fer yfir dansgólfið í Hvíta húsinu.
Ballsleikur er áhugamál Grétu þar sem að hún er fokking pro í honum!
Gréta er unaður að vera með og þykir fátt skemmtilegra en að fara í pulló og drekka kókómjólk!
Hún er alltaf til í djamm og er hún þessvegna að fara með mér, Írisi, Kristínu og Freyju til Tenerife 8.júlí 2008!


...hvernig ætli kanarískur skemmtistaðasleikur sé??


--Kolbrún; Tjah ætli maður verði ekki bara að komast að því í sumar :)

Saturday, March 29, 2008

Ferðafélagi

Jæja tölum aðeins um ferðafélaga. Ástæða? jú útaf því að Kolbrún er gott dæmi um ferðafélaga sem er bæði skemmtilegur og líka alveg einn leiðinlegasti ferðafélagi sem til er!

Þegar það er dagur og við erum að keyra eitthvert, tökum Reykjavík sem dæmi, þá er ferðin okkar til Reykjavíkur alveg rosalega skemmtileg þar sem við setjum einhver gamlan disk og syngjum með eða tölum endalaust mikið. En heimleiðin er ekki eins skemmtileg allra síst þegar það er komin kvöld og myrkur. Þá ákveður stelpan að fara bara að sofa!!! Það er mest pirrandi í heimi að vera að keyra heim frá Reykjavík segjum í kringum miðnætti og maður er kannski orðinn þreyttur og manneskjan við hliðina á manni er sofandi, jafnvel hrjótandi. Það er ekki séns að Kolbrún geti haldið sér vakandi alla leiðina heim frá Reykjavík, hún er að berjast við halda augunum opnum þar sem ég er búin að skamma hana svo mikið en hún þraukar aldrei lengur en að Þrengslunum. Hún setur meira að segja kannski mjög fjörugan disk í tækið til að reyna að halda sér vakandi heim EN viti menn, hún sofnar sama hversu hátt stillt tónlistin er og hversu fjörug hún er. En hún er samt líka mikið í því að setja einhvern ýkt rólegan disk í að ég meira sofandi heldur en vakandi;) hehe

Þannig að Kolbrún farðu að gera eitthvað í þessu því með þessu áframhaldandi þá sofna eg undir stýri og við bara úúútaf:P haha

En ef einhver er með geðveikt góða hugmynd um hvernig ég næ að halda Kolbrúnu vakandi alla leiðina heim endilega látið heyra í ykkur;)

ÍrisDröfn - sem vonar að Kolbrún haldi sér vakandi á heimleið í kvöld;)

Monday, March 24, 2008

Páskar

Faðir Páskaegg


Þú sem ert í munni


Helgist þitt bragð


tilkomi þinn málsháttur


Verðir þú gott


Í hillu sem og munni.


Gef oss í dag vorann daglega sykur


og fyrirgef oss að borða nammi ekki bara á laugardögum


Elska þig páskaegg <3


Saturday, March 15, 2008

Palli rocks my world

Vávávívá hvað þetta ball var beeeeest!
-KG

Wednesday, March 12, 2008

Páll Óskar í smellytown


Páll Óskar, þekktastur fyrir þröngu buxurnar sínar og dj- og söng hæfileika sína, mun þeyta skífum í vor illa lyktandi smábæ föstudaginn 14.mars í Ráðhúskaffi. Auðvitað verður maður að skella sér enda ekki oft (réttara sagt aldrig) sem meistari Páll kemur í höfnina!

Ég hvet alla til að demba sér í eitt klístraðasta ball ársins í Þorlákshöfn!
--KGunnars; Bleiiiz

Friday, March 7, 2008

Zuuber 2 / Deitið


Já nú er maður umtalaður í skólanum sem stelpan sem fór á deit í pulló eða sú sem varð að reyna að redda sér kærasta í gegnum Zuuber. Það vona ég reyndar að fólk sé ekki að halda, þar sem þetta var bara eitt feitt grín :)
Ég, Kristín Dís og Freyja Mjöll mættum galvaskar í pulsuvagninn, að vísu klukkan tólf þar sem deitið átti að vera klukkan hálf eitt og okkur langaði ekkert brjálað mikið að mæta á það. Við sátum í sakleysi okkar (Freyja undir stýri) í Golfinum á hótelplaninu að snæða pulló matinn okkar.
Þá birtist allt í einu blá GT Impreza. Við hugsuðum allar "vá hvað þetta er pottþétt gaurinn". Og viti menn, það var hann! Imprezan renndi upp að okkur (og ég meina ekkert lítið nálægt, ef hann hefði komið aðeins nær hefði hann straujað okkur) og skrúfaði niður rúðuna. Freyja hallaði sér að mér og grét úr hlátri og ég hallaði mér að henni og náði ekki andanum vegna hláturs, á meðan lá kristín dís á gólfinu í bílnum. Þegar við meikuðum ekki meira (og Freyja orðin alsvört vegna maskaraleka) skellti ég í drive og við rúlluðum af stað.

Dúddinn sá þá hvað var í gangi og keyrði í burtu og fór í Pulló röðina. Í Pulsuvagninum voru þó nokkuð margir Þorlákshafnarbúar staddir til að fylgjast með atburðinum. Við keyrðum mörgum sinnum framhjá gæjanum með tárin lekandi og gjörsamlegast að bilast úr hlátri! Svo vorum við að benda öllum á gæjann þar sem að það var mikil spenna fyrir að sjá hann.
Hann reyndist ekki vera..... "mín týpa!"
Ath að gæjinn sagði við mig að þetta hafi verið grín hjá sér að hringja inn á Zuuber :)
--KolbrúnGunnars; Sem fann ekki ástina í Zuuber ;)

Thursday, March 6, 2008

Zuuber




Ég kom mér í skemmtilegt atvik í dag!


Ég var að leggja af stað í skólann með fríðu föruneyti þegar að einhver kjáni hringdi inn á Fm957 í Zuuber þáttinn. Það sem hann sagði var að hann væri 21 árs, héti Fannar, byggi á selfossi og væri gröfukall. Hann vildi finna sér einhverja stelpu! Þetta hlógum við öll í bílnum óendanlega mikið að, enda ekki oft sem maður heyrir svona rugl í útvarpinu (þó svo mig gruni að þetta hafi verið eitthvað sem Fannar greyjið hafi verið manaður upp í að gera.)
Svo kom það upp í kollinn á mér að hringja inn og rugla eitthvað, eins og ég geri best.


Ég hringdi og sagðist vera í skóla á Selfossi og ég væri sko alveg til í hann því að mig vantaði svo einhvern kærasta til að gista hjá á virkum dögum, það væri svo leiðinlegt að keyra í skólann á morgnana og það myndi spara mér bensín. (Fékk klapp á þetta :D).


Svo voru þau eitthvað að reyna að koma okkur saman og ákveðið var að við myndum hittast í pulló og svo ætluðu þau að bjóða okkur í bíó.


Ég ætla mér nú reyndar að fara í pulló, en ég ætla með Kristínu og Freyju og snæða með þeim!


Forvitnilegt er að vita hvort að Fannar kallinn mæti galvaskur í pulló í smóking akandi gröfu!?

--KolbrúnGunnars; þokkalega komin á sjéns ;)

Sunday, March 2, 2008

Þessi síða?

Spurt: Blogger.com herm þú mér, hver af okkur blogguðust er?!
Svarað: Það mun koma í ljós næstu vikur á nýju síðunni ykkar "hafnarstulkur.blogspot.com"
--KG; you like?